Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leigu­lausnir taka við rekstri Hótels Norður­lands

Read Full Article →

Leigulausnir ehf. hafa tekið við rekstri Hótel Norðurland, 41 herbergja hótels í miðbæ Akureyrar. „Með yfirtökunni stígur félagið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu á þjónustu sinni innan ferðaþjónustu,“ segir í fréttatilkynningu. Leigulausnir, sem hófu starfsemi fyrir sjö árum síðan, sérhæfa sig í rekstri og þjónustu við skammtímaleigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Félagið sinnir m.a. bókunum, þrifum, verðstýringu, samskiptum við gesti og daglegum rekstri eigna. „Rekstur Hótel Norðurland fellur vel að núverandi starfsemi félagsins. Leigulausnir hafa yfir að ráða eigin þvottahúsi, reynslumiklu starfsfólki í þrifum og umsjón, ásamt öflugum rekstrarkerfum sem nýtast beint inn í hótelreksturinn.“ Félagið segir að markmið með yfirtökunni sé að byggja upp starfsemina enn frekar, bæta gæði þjónustunnar og straumlínulaga reksturinn með áherslu á skilvirkni og góða upplifun gesta. „Þetta er spennandi skref fyrir okkur. Við sjáum mikil tækifæri í rekstri Hótel Norðurland og hlökkum til að þróa starfsemina áfram með okkar nálgun og reynslu,“ segir Arnar Elíasson . Leigulausnir ehf. eru í jafnri eigu Almars Ögmundssonar, Þórs Adams Rúnarssonar, Ketils Sigurðar Jóelssonar og Arnars Elíassonar. Rekstur Hótels Norðurlands hefur verið í höndum félagsins Hótel Norðurland ehf., sem er í eigu Júlíönu Sigurbjargar Jónsdóttur, samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Félagið velti 218 milljónum króna og hagnaðist um 12 milljónir árið 2024, samkvæmt síðasta birta ársreikningi.

Share this article