Stjórnendur og starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna harma að eldsvoði hafi orðið á meðferðarheimilinu Stuðlum í október 2024. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá FSRE , sem undirrituð er af forstjóranum Óskari Jósefssyni. Í skýrslu HMS um eldsvoðann , sem birt var í gær, sagði að eftirlitsaðilar hafi ítrekað krafið Ríkiseignir, sem eiga húsnæði Stuðla, um úrbætur á brunavörnum árin á undan. Ríkiseignir hafi ekki gert nauðsynlegar úrbætur. Í yfirlýsingu FSRE segir að þegar hafi verið brugðist við þeim atriðum, í skýrslunni, sem snúa að ábyrgð FSRE sem húseiganda. Meðal annars með því að breyta verkferlum og skipulagi stofnunarinnar sem á að tryggja að byggingar í umsjón hennar séu öruggar og standist kröfur. Þá verði unnið með úrbótatillögur HMS. Á meðan rannsókn lögreglu stendur yfir tjái stofnunin sig ekki frekar um málið. Yfirlýsing FSRE í heild Vegna atviks sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum þann 19. október 2024 Stjórnendur og starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna harma það atvik sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum þann 19. október 2024. Í skýrslu HMS um eldsvoða á Stuðlum er vandlega farið yfir hlutverk þeirra opinberu aðila sem koma að uppbyggingu og rekstri opinberra bygginga og eftirliti með þeim. Markmið með útgáfu skýrslunnar er að draga lærdóm af því sem gerðist í aðdraganda brunans og í brunanum sjálfum til að koma í veg fyrir að svipaðir atburðir endurtaki sig. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir gegnir hlutverki húseiganda á meðferðarheimilinu Stuðlum og það felur meðal annars í sér að tryggja að öryggiskröfur byggingarinnar séu uppfylltar. Í skýrslunni koma fram atriði sem snúa að ábyrgð húseiganda. Þegar hefur verið brugðist við þeim m.a. með því að breyta verkferlum og skipulagi stofnunarinnar sem á að tryggja að byggingar í umsjón hennar séu öruggar og standist kröfur. Lögð verður áhersla á að vinna með þær úrbótatillögur sem lagðar eru fram í skýrslu HMS. Á meðan rannsókn lögreglu á málinu stendur yfir sér stofnunin sér ekki fært að tjá sig frekar um málið. Virðingarfyllst Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna