Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Allt rautt við opnun markaða í Evrópu

Read Full Article →

Evrópskir hluta­bréfa­markaðir lækkuðu veru­lega við opnun í morgun eftir að Bandaríkin og Íran héldu áfram hótunum um frekari árásir á orku­inn­viði í Persaflóa. Stoxx Europe 600 vísi­talan lækkaði um 1,7 pró­sent í upp­hafi við­skipta og var þar með komin inn á leiðréttingar­svæði, eða meira en 10 pró­sentum undir hæstu stöðu sinni fyrir átökin. Breska FTSE 100-vísi­talan lækkaði um 1,5 pró­sent og þýska DAX-vísi­talan um 1,9 pró­sent. Óróinn á mörkuðum náði þó langt út fyrir hluta­bréfa­við­skipti. Brent-hráolía fór yfir 113 dali á tunnu, þótt hún væri enn undir hæsta gildi sínu frá því átökin hófust, 119 dölum. Gas­verð í Evrópu hækkaði jafn­framt um 3,1 pró­sent. Á sama tíma féll gull­verð um meira en 8 pró­sent og þurrkaði þar með út allan ávinning ársins. Þar virðist annars vegar gæta áhrifa af sterkari dollar og hins vegar af því að fjár­festar búast nú við að verðbólga haldi vöxtum hærri í Bandaríkjunum en áður var talið. Þrýstingurinn kom einnig skýrt fram á skulda­bréfa­mörkuðum í Evrópu. Ávöxtunar­krafa á 10 ára breskum ríkis­skulda­bréfum hækkaði um 0,06 pró­sentu­stig, í 5,05 pró­sent, og hefur ekki verið hærri síðan árið 2008. Krafa á tveggja ára breskum ríkis­skulda­bréfum hækkaði á sama tíma um 0,05 pró­sentu­stig, í 4,63 pró­sent, sem er hæsta staða frá febrúar 2024. Ávöxtunar­krafa á tveggja ára þýskum ríkis­skulda­bréfum hækkaði einnig, um 0,05 pró­sentu­stig, í 2,71 pró­sent. Sér­stak­lega hefur at­hyglin beinst að Bret­landi, þar sem hækkandi orku­verð hefur aukið ótta við stöðnun sam­hliða þrálátri verðbólgu. Markaðir verð­leggja nú að fullu fjórar vaxta­hækkanir frá Eng­lands­banka á þessu ári, hverja um 0,25 pró­sentu­stig. Fyrir átökin höfðu fjár­festar hins vegar gert ráð fyrir tveimur vaxtalækkunum. Viðbrögð markaða komu í kjölfar þess að Donald Trump, for­seti Bandaríkjanna, hótaði seint á laugar­dag um­fangs­mikilli árás á írönsk raf­orku­ver ef Teheran opnaði ekki Hor­mússund á ný fyrir miðnætti að GMT í nótt. Íran brást við á sunnu­dag með því að hóta árásum á mikilvæga inn­viði víða um svæðið, þar á meðal orku­mann­virki. Sprengingar heyrðust síðan í Teheran í morgun á meðan Íran skaut eld­flaugum á Ís­rael og Persaflóaríkin.

Share this article