Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tölu­verðar hækkanir í fyrstu við­skiptum

Read Full Article →

Hluta­bréf hækkuðu í fyrstu við­skiptum í Kaup­höll Ís­lands í dag og virðist kaupþrýstingurinn helst endur­spegla auknar vonir fjár­festa um að dragi úr átökum í Miðaustur­löndum. Það er í takt við þróun á alþjóð­legum mörkuðum þar sem olíu­verð féll skarpt eftir fréttir af friðartillögu Bandaríkjanna til Írans. Hluta­bréfa­verð á evrópskum mörkuðum hefur einnig verið á upp­leið sam­hliða því að gull­verð hefur hækkað. Hluta­bréfa­verð Amaroq Minerals hefur hækkað mest frá opnun við­skipta en gengi félagsins fór upp um tæp 8% í 165 krónur í um 24 milljóna króna við­skiptum. Bréf JBT Marel hafa hækkað næst­mest, eða um tæp 4,6%, og stóðu í 16.000 krónum í um 5 milljóna króna við­skiptum. Þá hækkuðu bréf Icelandair um rúm 4% í 0,73 krónur, einnig í um 24 milljóna króna veltu. Eim­skip tók einnig vel við sér í upp­hafi dags. Bréf félagsins hækkuðu um tæp 2,5% í 242 krónur, en velta nam um 8 milljónum króna. Sjá einnig Hafa sent Írönum 15 atriða friðartillögu Að öllum líkindum má rekja hækkun á gengi Eim­skips og Icelandair til lækkunar á heims­markaðsverði olíu. Bréf Skaga hafa hækkað um tæp 2%, í 17 krónur, í um 21 milljón króna við­skiptum. Sýn hefur hækkað um rúm 1,5% í 98 krónur og Sjóvá um rúmt 1% í 35,8 krónur. Velta í hvoru félagi nam um 8 milljónum króna. Á alþjóðamörkuðum virðist léttir hafa gripið um sig eftir fréttir af því að Bandaríkin hefðu komið 15 liða áætlun til Írans á fram­færi í gegnum Pakistan. Donald Trump sagði í gær að Íran væri farið að „tala af skyn­semi“ og olíu­verð féll um nokkur pró­sent, þar sem Brent fór tíma­bundið niður fyrir 100 dali fatið. Slík þróun dregur jafnan úr verðbólguótta og getur stutt við aukna áhættusækni á hluta­bréfa­mörkuðum. Sjá einnig Trump segir Írani hafa gefið risastóra gjöf

Share this article