Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,44 prósent í dag og tók aðalmarkaður Kauphallar Íslands myndarlegan kipp í kjölfar fregna um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans. Viðhorf á mörkuðum batnaði þegar dregið hafði úr ótta við langvarandi truflanir á orkuflutningum um Hormússund og Brent-hráolía lækkaði um rúm 13 prósent, niður undir 95 dali tunnan. Sú þróun dró úr þrýstingi á alþjóðamörkuðum og ýtti undir aukna áhættusækni fjárfesta. Sjá einnig Trump samþykkir tveggja vikna vopnahlé gegn opnun Hormússunds Áhrifanna gætti mest í gengi Icelandair, sem hækkaði um tæp 9 prósent. Flugfélagið hefur orðið fyrir töluverðum áhrifum af átökunum í Íran, enda er Brent-hráolía meðal þess sem notað er við framleiðslu flugvélaeldsneytis. Þá sækja evrópsk flugfélög meira en fjórðung af þotueldsneyti sínu til Persaflóaríkja, sem undirstrikar hversu viðkvæmt rekstrarumhverfi þeirra er fyrir röskunum í og við Hormússund. Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins Amaroq hækkaði um rúm 7 prósent samhliða því að gullverð hækkaði á mörkuðum eftir að vopnahlésfregnirnar drógu úr verðbólguótta og ýttu á ný undir væntingar um vægari vaxtaþróun. Gengi JBT Marel hækkaði um tæp 5 prósent, á meðan Eimskip, Skagi, Arion banki, Festi og Íslandsbanki hækkuðu einnig myndarlega. Heildarvelta á markaði nam 4,4 milljörðum króna. Sjá einnig Olíuverð lækkað um 14% í dag