Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tap sjóðsins komið í 1,3 milljarða dala

Read Full Article →

Vogunar­sjóðurinn Caxton Associa­tes í London hefur tapað meira en 1,3 milljörðum dala í þessum mánuði eftir að átökin í Íran hleyptu miklum óróa í alþjóð­lega fjár­mála­markaði. Sam­kvæmt Financial Times hefur 9 milljarða dala sjóður Caxton, sem tekur stöður út frá þróun vaxta, gjald­miðla, hrávöru­verðs og annarra þjóðhags­stærða, lækkað um 15% það sem af er mánuði. Umræddum macro sjóði féalgsins stýrt af Andrew Law, for­stjóra félagsins. FT hafði áður greint frá því fyrr í mánuðinum að sjóðurinn hefði tapað 7%, eða að minnsta kosti 600 milljónum dala, á einni viku í mars. Tapið hefur því meira en tvöfaldast á skömmum tíma. Caxton er þar með orðið eitt sýni­legasta fórnar­lamb þeirrar markaðs­röskunar sem átökin í Miðaustur­löndum hafa valdið. Einkum hafa orku- og skulda­bréfa­markaðir tekið miklum breytingum eftir að olíu- og gas­verð tók að hækka snarpt. Fjár­festar hafa í auknum mæli losað sig við ríkis­skulda­bréf í þeirri trú að hækkandi orku­verð muni ýta undir verðbólgu og jafn­vel neyða seðla­banka til að halda vöxtum hærri lengur eða hækka þá frekar. Þessi þróun hefur komið illa niður á vogunar­sjóðum sem höfðu tekið stöðu fyrir vaxtalækkunum eða veðjað á að ávöxtunar­krafa langtíma­bréfa myndi hækka meira en á skemmri bréfum. Bresk ríkis­skulda­bréf hafa orðið sér­stak­lega fyrir barðinu á þessari þróun og hefur ávöxtunar­krafa tíu ára breskra ríkis­bréfa ekki verið hærri síðan 2008. Andrew Law hafði lýst bjartsýni á horfur á breskum ríkis­skulda­bréfum undir lok síðasta árs og sagt að ávöxtunar­krafan þar væri rang­lega verðlögð og myndi færast nær því sem tíðkaðist í öðrum stærri hag­kerfum. Sú sýn hefur reynst dýr­keypt í ljósi síðustu vikna. Caxton hagnaðist einnig á veðmálum á gull og kopar á síðasta ári. Sú staða hefur hins vegar snúist við. Gull, sem oft er litið á sem örugga höfn þegar óvissa herjar á markaði, hefur lækkað um 15% frá því stríðið hófst í lok febrúar. Kopar hefur einnig gefið eftir. Markaðir virðast einnig enn mjög viðkvæmir fyrir hverri nýrri vendingu í átökunum en tap Caxton sýnir svart á hvítu hversu dýr­keypt það getur verið að veðja á ranga hesta á vaxta- og hrávörumörkuðum þegar óvissa tekur yfir. Sjá einnig Tapa yfir 600 milljónum dala vegna átaka í Íran

Share this article