Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Bera lækkaði eftir upp­gjör

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Beru, móðurfélags Öl­gerðarinnar, lækkaði um rúm 2% í Kaup­höllinni í dag eftir að félagið birti stjórn­enda­upp­gjör sitt eftir lokun markaða í gær. Bréf félagsins stóðu í 14,28 krónum við lokun og velta nam um 26 milljónum króna. Í upp­gjörinu kom fram að Bera hagnaðist um 2,1 milljarð króna á fjár­hagsárinu sem lauk 28. febrúar síðastliðinn, saman­borið við 2,4 milljarða króna árið áður. Vöru­sala jókst hins vegar um 7,3% milli ára og nam 49 milljörðum króna, á meðan EBITDA var nær óbreytt milli ára, eða 5 milljarðar króna. Félagið greindi jafn­framt frá því að af­komu­spá fyrir nýtt fjár­hagsár geri ráð fyrir EBITDA á bilinu 6,1 til 6,5 milljarðar króna, meðal annars með fullum áhrifum af inn­komu Gæða­baksturs og Kjarna­vara. Markaðurinn var að öðru leyti fremur neikvæður í dag. Mest lækkaði hluta­bréfa­verð JBT Marel, um 6,5%, og stóð í 15.700 krónum við lokun. Hluta­bréfa­verð Kald­víkur lækkaði um rúm 3% og var dagsloka­gengið 24,80 krónur á hlut. Eim­skip lækkaði einnig um rúm 2% í 242 krónur, Brim um tæp 2% í 76 krónur og Skagi um 2% í 16,60 krónur. Þá lækkaði Icelandair u rúmt 1% í 0,71 krónu. Mest velta var í Ís­lands­banka, þar sem við­skipti námu um 415 milljónum króna, en hluta­bréfa­verð bankans lækkaði um 0,74% í 133,50 krónur. Næst­mest velta var í Arion banka, 411 milljónir króna, og lækkaði gengi bankans um 0,85% í 176 krónur. Þá nam velta í Festi um 175 milljónum króna. Á móti lækkunum hækkuðu nokkur félög lítil­lega. Amaroq Minerals hækkaði um 2,60% í 158 krónur, Hampiðjan um 1,73% í 88 krónur og Al­vot­ech um 1,29% í 394 krónur. Úr­vals­vísi­talan OMXI15 lækkaði um 0,55% í 2.580,50 stig. Heildar­velta á hluta­bréfa­markaði nam um 1,4 milljörðum króna í 209 við­skiptum.

Share this article