Eftir verulega lækkun í gær hefur heimsmarkaðsverð Brent hráolíu hækkað um 3% í dag og stendur í 97,5 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Til samanburðar fór verðið lægst undir 92 dali í gær. Hækkunin í dag er rakin til efasemda um stöðugleika vopnahlés milli Bandaríkjanna og Írans. Árásir Ísraels á Líbanon eru taldar ógna samkomulaginu, sem og áframhaldandi örðugleikar í skipaflutningum um Hormússundið. Írönsk stjórnvöld hafa gefið það út að þau hyggist takmarka fjölda skipa sem fer um sundið og rukka gjald fyrir flutninga á svæðinu. Evrópska hlutabréfavísitalan Stoxx Europe 600 hefur lækkað um 0,6% það sem af er degi. Suður-kóreska vísitalan Kospi lækkaði um 1,6% í morgun, japanska Nikkei 225 lækkaði um 0,7% og kínverska SSE Composite lækkaði um 0,7%.