- What: Origo acquires Maven, a data analytics company
- Impact: Affects business data solutions in Iceland
Origo hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Maven ehf., sem sérhæfir sig í viðskiptagreind, gervigreindarlausnum og þróun snjallra mælaborða sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku viðskiptavina sinna. „Maven hefur vaxið ört frá stofnun árið 2021 og er í dag leiðandi aðili á íslenskum markaði í uppbyggingu gagnainnviða og hagnýtingu gagna fyrir mörg af stærri fyrirtækjum og stofnunum landsins,“ segir í tilkynningu Origo. Kaupin eru sögð liður í stefnu Origo um að efla enn frekar stöðu sína sem leiðandi samstarfsaðili á sviði gagna og gervigreindar, og styrkja getu félagsins til að aðstoða viðskiptavini við að umbreyta gögnum í raunverulegt virði með nýtingu nýjustu tækni og lausna. Origo segir sameininguna skapa sterkari heild í þjónustu við viðskiptavini sem vilja nýta gögn og gervigreind til að bæta rekstur og auka samkeppnishæfni. „Með kaupum á Maven eflum við þjónustuframboð Origo á sviði gagna og gervigreindar. Teymi Maven hefur byggt upp mikla sérþekkingu og reynslu á þessu sviði. Öflugir gagnainnviðir eru undirstaða fyrir hagnýtingu gervigreindar, þar sem öryggi gagna og traust þurfa að vera í forgrunni,“ segir Árni Geir Valgeirsson , forstjóri Origo. „Það er hlutverk Origo að vera í fararbroddi við á þessu sviði á Íslandi. Við sjáum því mikinn styrk í að sameina krafta okkar og Maven, og bjóða viðskiptavinum enn öflugri lausnir.“ „Teymisvinna hefur verið lykilatriði í starfi Maven, enda er þekkingarfyrirtæki eins og okkar fyrst og fremst fólkið sjálft. Sú hugsun passar vel við það sem við sjáum hjá Origo og afar spennandi að verða hluti af stærri heild,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson , framkvæmdarstjóri Maven. „Með sameiginlegum styrk getum við byggt upp enn öflugri þjónustu, framtíðarvæna gagnainnviði, tengt betur saman gögn og kerfi og hjálpað viðskiptavinum að koma gögnum í verk. Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að halda áfram að vaxa og þróa lausnir sem skipta máli.“