Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Engin arð­greiðsla hjá Beru í ár

Read Full Article →

Stjórn Beru hyggst leggja til á aðal­fundi að enginn arður verði greiddur út á árinu, þrátt fyrir að félagið hafi hagnast um rúma 2,1 milljarð króna á rekstrarárinu 2025–2026. Á fyrra ári greiddi félagið 0,5 krónur á hlut í arð. Í árs­reikningi sam­stæðunnar kemur fram að hagnaður ársins hafi numið 2,126 milljörðum króna, saman­borið við 2,433 milljarða árið áður. Vöru­sala jókst á sama tíma um 7 pró­sent og nam tæpum 49 milljörðum króna en EBITDA var nánast óbreytt milli ára og nam tæpum 5 milljörðum króna. Sjá einnig Bera hagnaðist um 2,1 milljarð Ákvörðunin vekur at­hygli í ljósi arð­greiðslu­stefnu félagsins sem kveður á um að stefnt sé að því að greiða ár­lega út 25 til 50 pró­sent af hagnaði hvers árs, með fyrir­vara um fjár­hags­stöðu, fjár­magns­skipan, fjár­festingará­form, áhættu og rekstrar­horfur. Í skýrslu stjórnar og for­stjóra kemur jafn­framt fram að eigið fé sam­stæðunnar hafi hækkað um 2 milljarða króna á árinu og numið 18,4 milljörðum króna í lok febrúar. Á móti jukust nettó vaxta­berandi skuldir sam­stæðunnar að viðbættri húsa­leigu­skuld­bindingu um 6,9 milljarða króna vegna kaupa á Gæða­bakstri og Kjarna­vörum og stóðu í 13,1 milljarði króna í lok tíma­bilsins. Reksturinn var mis­jafn milli eininga á árinu. Í árs­reikningnum segir að mest hafi munað um erfiðan rekstur Iceland Spring, þar sem EBITDA lækkaði um 310 milljónir króna milli ára, að mestu vegna áhrifa tolla á út­flutning til Bandaríkjanna og ein­skiptis­kostnaðar. Á móti hafi inn­koma Gæða­baksturs og Kjarna­vara haft jákvæð áhrif á reksturinn.

Share this article