Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Allir fastráðnir fá kauprétt að hlutum í félaginu

Read Full Article →

Stjórn Beru hefur samþykkt kaupréttaráætlun fyrir allt starfs­fólk félagsins og eftir at­vikum dóttur­félaga þess. Sam­kvæmt árs­reikningi hafa samningar þegar verið gerðir við 303 starfs­menn og ná þeir til 12,4 milljóna hluta á ári í þrjú ár, miðað við fulla nýtingu. Kauprétturinn nær til allra fastráðinna starfs­manna félagsins og dóttur­félaga þess. Hver kaupréttar­hafi fær rétt til að kaupa hluti í Beru fyrir að há­marki 750 þúsund krónur einu sinni á ári í þrjú ár, fyrst 1. septem­ber 2026, síðan 1. septem­ber 2027 og loks 1. septem­ber 2028. Saman­lagt getur hver starfs­maður því keypt hluti fyrir allt að 2,25 milljónir króna, að því gefnu að hann starfi áfram hjá félaginu eða dóttur­félagi þess á ávinnslutímanum. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið boðar svo víðtæka áætlun fyrir allan starfs­manna­hópinn, en í árs­reikningnum er tekið fram að hún sé sett fram í samræmi við starfs­kjara­stefnu sem samþykkt var á aðal­fundi í maí í fyrra. Í ófjár­hags­legri upp­lýsinga­gjöf félagsins er sér­stak­lega bent á að öllu fastráðnu starfs­fólki hafi boðist kaupréttur með það að mark­miði að auka þátt­töku þess í verðmæta­sköpun fyrir­tækisins. Á sama tíma kemur fram að útistandandi kaupréttur í félaginu nam í lok febrúar 114 milljónum hluta, eða um 4 pró­sentum hluta­fjár, saman­borið við 3,4 pró­sent ári áður. Á árinu voru jafn­framt gjald­færðar 72 milljónir króna í rekstrar­reikningi vegna kaupréttar­samninga og er heildar­kostnaður félagsins vegna þeirra áætlaður um 272 milljónir króna. Bera var með að meðaltali 462 stöðu­gildi á rekstrarárinu, saman­borið við 404 árið áður. Kaupréttaráætlunin kemur því til viðbótar eldri samningum sem höfðu áður verið gerðir við stjórn­endur og lykil­starfs­fólk félagsins. Sjá einnig Engin arð­greiðsla hjá Beru í ár

Share this article