- What: Advania reports financial results for 2025
- Impact: Business performance and strategic direction of a technology company in Iceland
Advania á Íslandi hagnaðist um 1,1 milljarð króna á árinu 2025, samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnað árið áður. Stjórn Advania á Íslandi leggur til að greiddur verði 900 milljóna króna arður til hluthafa í ár vegna rekstrarniðurstöðu síðasta árs. Tekjur félagsins námu 18,3 milljörðum króna, samanborið við 19,9 milljarða árið 2024. EBITDA-hagnaður Advania á Íslandi nam ríflega 2,3 milljörðum, samanborið við rúmlega 2,6 milljarða árið áður. Sjá einnig Forstjóraskipti hjá Advania á Íslandi Hildur Einarsdóttir tók við sem forstjóri Advania á Íslandi í mars á síðasta ári. Stefnumörkun félagsins var kynnt síðsumars og tók skipurit félagsins samhliða breytingum til að styðja við hana. Áhersla var lögð á áframhaldandi hagnýtingu upplýsingatæknilausna, netöryggismál og sókn á sviði gervigreindar. „Árið 2025 var ár breytinga og framþróunar á sviði upplýsingatækni og það sýndi sig að sú djúpa þekking sérfræðinga Advania, hæfileikar til að hlaupa hratt og nýta tækniframfarir á öruggan hátt skila sér um leið í virði til viðskiptavina,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi. Starfsmenn Advania á Íslandi eru um 550 talsins, en félagið er hluti af Advania samstæðunni þar sem um 5.500 manns starfa. Í framkvæmdastjórn Advania á Íslandi sitja Hildur Einarsdóttir forstjóri, Auður Inga Einarsdóttir framkvæmdastjóri Innviðalausna, Erna Björk Sigurgeirsdóttir framkvæmdastjóri Fjármála, mannauðs og samskipta, Hafsteinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna, Sigríður Sía Þórðardóttir framkvæmdastjóri Viðskiptalausna og Sigrún Ámundadóttir framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna.