Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Uppsagnir ekki verið fleiri í langan tíma

Read Full Article →

Stór bandarísk tæknifyrirtæki hafa tilkynnt nýlega um stórar hópuppsagnir, þar sem reynt er að ná fram aukinni skilvirkni með aukinni notkun gervigreindar. Alls var um 45,8 þúsund starfsmönnum tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum sagt upp í síðasta mánuði. Ekki verið sagt upp jafn mörgum einstaklingum í þessum geira í a.m.k. tvö ár samkvæmt vefsíðunni Layoffs.fyi sem The Wall Street Journal vísar í. Meta, móðurfélag Facebook, tilkynnt nýlega um að félagið hyggist fækka starfsmönnum um 8 þúsund. Microsoft stefnir á að fækka starfsmönnum sínum í Bandaríkjunum um 7%. Að sama skapi hafa önnur fyrirtæki á borð við Oracle, Snap, fjártæknifyrirtækið Block tilkynnt um stórar uppsagnarlotur. Í tilviki síðastnefnda fyrirtækisins var um 40% af starfsmönnum sagt upp. Tæknifyrirtækin hafa reynt að draga upp þá mynd að með fækkun starfsmanna séu þau að horfa til að nýta tækifæri sem felast í gervigreind, fremur en að þróunin endurspegli einhver vandræði í rekstri sem spili þar inn í. Í umfjöllun WSJ segir hins vegar bent á að tæknifyrirtækin séu nú að keppast um að losa eins mikið fjármagn og unnt er til að fjárfesta í gervigreindarinnviðum, þar á meðal örflögum og gagnaverum. Fyrirtækin telji að þau geti ekki dregist aftur úr á þennan mælikvarða. Í sumum tilfellum virðast hópuppsagnirnar vera leiðrétting fyrir fyrri tímabil þar sem tiltekin fyrirtæki réðu til sín mjög mikið af starfsfólki á skömmum tíma.

Share this article