Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þegar heimurinn fórst: Hefði getað verið flott hugmynd en tókst ekki nægilega vel

Read Full Article →

Rithöfundurinn Stefán Máni er á nýjum slóðum í sinni nýjustu skáldsögu, Þegar heimurinn fórst. Hann hefur sjálfur sagt að þetta sé bók sem hans vinsælasta sögupersóna, Hörður Grímsson, myndi helst vilja lesa. „Ég leyfi mér að efast um það,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi í Kiljunni. „Þarna tel ég mig vita betur en Stefán Máni. Hörður Grímsson hefði ekki enst til að lesa þessa bók til enda.“ Sögusviðið er Bandaríkin og Tommi er á flótta eftir að hafa framið ódæðisverk. Örlögin leiða hann saman við Míu og fjölskyldu hennar rétt áður en allt breytist. „Það sem gerist er að loftsteinn rekst á jörðina og það verður heimsendir. Svo virðist sem Tommi og Mía séu þau einu sem eru eftir lifandi.“ Sagan byggist á samskiptum þeirra þar sem þau koma sér fyrir í stórri verslun í úthverfi stórborgar. „Svo er þetta líka hugmyndafræðileg bók að stórum hluta. Það stendur þarna á kápunni að Tommi sé djöfull í mannsmynd en það finnst mér ekki endurspeglast í bókinni.“ „Hann fremur nokkur ódæði og þau ódæði finnst mér alls ekki styrkja söguna. Mía er að velta fyrir sér guði og vitund og þau eiga löng samtöl sem eru sumpart, finnst mér, áhugaverð. En mér finnst þessi saga dálítið líða fyrir skort á persónusköpun,“ segir Kolbrún sem trúði ekki á persónurnar. „En ég hef alltaf dálítið gaman af bókum sem fjalla um heimsendi. Mér finnst það eitthvað svo gott á okkur mannkynið, í okkar sjálfumgleði, að okkur sé sagt að við förumst öll.“ Hún telur bókina vera fyrir ungt fólk einna helst. „Ég held að þar muni margir lesa hana sér til ánægju en ég er nokkuð gagnrýnin, verð ég að segja.“ Hefði getað orðið flott hugmynd Ingibjörg Iða Auðunardóttir tekur í sama streng og þykir ýmislegt vanta upp á. „Þegar sagnasviðið er Bandaríkin og allar persónurnar bandarískar þá er svolítið flókið og snúið að skrifa á íslensku.“ „Ég datt aðeins úr taktinum því mér fannst hann nota svo mikið af séríslenskum orðtökum. Það er algjörlega órökrétt því ekki geturðu skrifað á ensku eða beinþýtt, en þetta er einhver ákveðinn vegur sem feta þarf og mér fannst honum ekki takast nægilega vel með það.“ Auk þess þykir henni persónusköpunin ekki góð. „Ég verð því miður að taka undir það. Til dæmis er Mía bara mjög flöt persóna. Annað hvort er hún rosalega hrædd og reiðir sig algjörlega á Tomma eða hún getur ekki hætt að lesa og sanka að sér fróðleik um guð og heimspeki. Það var ekkert þarna á milli.“ Þau Mía og Tommi séu mögulega þau einu sem eftir eru lifandi á jörðinni en henni líkar ekkert sérstaklega vel við hann. „Það vantar dálítið að lýsa spennunni í samskiptum,“ segir Kolbrún. „Þessi hugmynd hefði getað orðið eitthvað mjög flott en þetta bara tókst ekki alveg,“ segir Ingibjörg. Kolbrún tekur undir og segir bókina hafa þurft meiri vinnslu. Gagnrýnendum Kiljunnar þykir bókin Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána líða fyrir skort á persónusköpun. Hugmyndin sé góð en hefði þurft meiri vinnu. Kolbrún telur bókina þó líklega höfða betur til ungs fólks en sín. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article