Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stúlka með fálka: Hressandi, skemmtileg og verðmæt varðveisla

Read Full Article →

Stúlka með fálka eftir Þórunni Valdimarsdóttur er sjálfstætt framhald bókanna Stúlku með fingur, Stúlku með maga og Stúlku með höfuð þar sem sagnfræðingurinn og rithöfundurinn rekur eigin ættarsögu og ævi. Í þessari nýjustu bók lítur stúlkan um öxl og horfir til níunda áratugarins til dagsins í dag. „Síðustu tvær af þessum bókum fjalla um hana sjálfa,“ segir Þorgeir Tryggvason, gagnrýnandi Kiljunnar. Stúlka með höfuð og Stúlka með fálka skarast svolítið á tímalega og efnislega þar sem Þórunn er að skrifa um sig sjálfa og byggir á eigin minni fremur en bréflegum heimildum og rannsóknum. Þórunn er einn fjölhæfasti rithöfundur Íslendinga og skrifar bæði skáldskap og fræðibækur. „Flæði er alveg hárrétta orðið til að lýsa þessu. Fókusinn er á ferilinn. Hún byrjar þegar hún byrjar að skrifa og fer mjög nákvæmlega yfir bækurnar sem hún skrifaði og viðtökurnar sem þær fengu, hvernig þær slógu hana. Það gengur stundum svolítið mikið á þegar hún fær slæma dóma.“ Einnig gerir Þórunn grein fyrir lífi sínu, vináttu og fjölskyldulífi, ást á eiginmanninum og sorginni við fráfall hans. „Flæðið felst í því að það er svolítið eins og þessi bók sé skrifuð þegar henni dettur eitthvað í hug. Þá bara kemur það í næstu málsgrein.“ Fer í sparðatíning með gamla ritdóma „Það er alltaf gaman að lesa Þórunni en þessi bók er svolítið þannig að það er kannski dálítið misskemmtilegt að lesa ólíka kafla,“ segir Sverrir Norland. Þegar Þórunn segi frá skemmtilegum atvikum eða lýsi áhugaverðu fólki þá fari hún á flug. „En svo er hún stundum í smá sparðatíningi með gamla ritdóma sem manni finnst kannski ekki alveg skipta öllu máli. Þetta er flottur höfundur sem er búinn að gefa út 31 bók eða hvað það er.“ Þorgeir tekur undir þetta og segist hálfpartinn sjá eftir því að hafa aldrei „slátrað bók eftir Þórunni, þá væri maður kannski í þessari bók.“ Skömmuð fyrir að vera of ljóðræn Sverri þykir áhugavert að hugsa til þess að Þórunn hafi skrifað mikið um þekkta karla á borð við Skúla fógeta, Matthías Jochumsson og Snorra á Húsafelli. „Hún er alltaf að skrifa um þessa miklu karla en svo er hún líka með svo mikið kvenlegt innsæi.“ „Hún er merkilegur höfundur, mikið ljóðskáld og ljóðræn með hugarflug en svo er hún líka nákvæmur sagnfræðingur. Það er sjaldgæf blanda.“ Fyrir þetta hafi Þórunn til að mynda fengið skammir á sínum tíma frá fræðimönnum sem þótti hún of ljóðræn í fræðitextum sínum. „Þeir fá á baukinn,“ segir Þorgeir. Líður aldrei á löngu þar til Þórunn talar um að fólk séu apar Egill Helgason, þáttastjórnandi Kiljunnar, segir Þórunni ofboðslega góðan stílista með auðþekkjanlega rödd sem geti bæði verið sprelligosi en einnig mjög vitur. „Það líður aldrei á löngu áður en maður opnar bók eftir Þórunni þangað til hún fer að tala um að við séum apar – og það er ekki rangt hjá henni,“ segir Þorgeir. Sverri þykir hún ganga svolítið nærri sér í þessari bók þar sem hún leyfir sér að vera persónuleg á köflum. „Þetta er hressandi og skemmtilegt og ég held að þetta eigi eftir að verða pínu verðmæt mynd af ákveðnum hluta af íslenskri menntaelítu í Reykjavík á þessum tíma,“ segir Þorgeir að lokum. „Ég held að þetta eigi eftir að verða pínu verðmæt mynd af ákveðnum hluta af íslenskri menntaelítu í Reykjavík á þessum tíma,“ segir Þorgeir Tryggvason um Stúlku með fálka eftir Þórunni Valdimarsdóttur í Kiljunni á RÚV. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Stúlku með fálka eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article