Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkisfjármálaleg tímasprengja

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.2.2026 | 6:00 Ríkisfjármálaleg tímasprengja Konráð S. Guðjónsson Verði frumvarp félags- og húsnæðisráðherra að lögum, sem kveður á um að bætur almannatrygginga hækki samkvæmt launavísitölu og ef kaupmáttur hennar rýrni hækki þær samkvæmt verðbólgu, stefnir það sjálfbærni ríkisfjármála, verðstöðugleika, atvinnuþátttöku og friði á vinnumarkaði í voða. Þá verði vond leið fest í sessi sem vinni gegn almannahag. Frétt af mbl.is Unnið gegn eigin markmiðum Þetta segir Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, í grein á vef fyrirtækisins, þar sem hann gagnrýnir harðlega áform um fyrrgreinda lagasetningu. Frétt af mbl.is Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Segir hann að tenging almannatrygginga við launavísitölu sé ríkisfjármálaleg tímasprengja, verði frumvarp þar um að lögum. Öruggt sé að í framtíðinni muni koma ár þar sem kaupmáttur launa rýrni, sagan sýni það. Í slíkum tilfellum muni lífeyrir hækka meira en laun og engin leið sé til að leiðrétta það með launahækkunum, því þær muni jafnframt hækka lífeyri. Hætta á að festast á bótum „Ef málin þróast þannig að bætur almannatrygginga verða hærri en lágmarkslaun á Íslandi getur það leitt til þess að það verði fjárhagslegur hvati að vera frekar utan vinnumarkaðar,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur bendir á að í lífeyrissjóðum verkafólks, þar sem langflestir öryrkjar eru, séu lífeyrisréttindi miklu lakari en í öðrum lífeyrissjóðum. Það sé áhyggjuefni og haldi sú þróun áfram muni það bitna á lífeyrisréttindum vinnandi fólks með lakari ellilífeyri og lakari réttindaávinnslu. Vilhjálmur Birgisson. mbl.is/Kristinn Magnússon „Skilaboð mín til þingmanna eru einfaldlega þau að allir í samfélaginu eru sammála um að tryggja verði stöðu þeirra sem höllustum fæti standa og að þeir geti látið enda ná saman, en við verðum að passa okkur á því að hinn fjárhagslegi ávinningur af því að vera á vinnumarkaði fari ekki í öfuga átt,“ segir Vilhjálmur og varar við því að fari svo sé hætta á að fólk festist á bótum sem hafi hækkað umtalsvert undanfarin ár, en verkalýðshreyfingin berjist fyrir því að fólk geti framfleytt sér á lægstu laununum. Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Allt að 15 stiga frost í dag Hlutur vöggustofubarna verði réttur Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Ríkisfjármálaleg tímasprengja Arnór einlægur: Sárt að enda þetta svona Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Þar sem enginn vill halda sín jól Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Endurstillti fókus eftir veikindi Fuglar og menn heimsfrumsýnd á CPH:DOX Stúlkan fundin heil á húfi Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands 50-60 metra rof á Reynisfjöru Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Allt að 15 stiga frost í dag Hlutur vöggustofubarna verði réttur Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Ríkisfjármálaleg tímasprengja Arnór einlægur: Sárt að enda þetta svona Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Ríkisfjármálaleg tímasprengja Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Endurstillti fókus eftir veikindi Fuglar og menn heimsfrumsýnd á CPH:DOX Stúlkan fundin heil á húfi Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands 50-60 metra rof á Reynisfjöru Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum

Share this article