Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íransstríðið tekur litinn úr japönsku snakki

  • What: Japanese food company Calbee changes packaging due to supply chain issues
  • Impact: Supply chain disruptions affect packaging materials in Japan
Read Full Article →

Japanska matvælafyrirtækið Calbee tilkynnti í dag að fyrirtækið neyðist nú til að skipta út litríkum umbúðum á snakkvörum sínum fyrir svarthvítar pakkningar vegna skorts á hráefnum sem eru notuð í prentun á umbúðunum. Á vef New York Times segir að ákvörðunin sé tímabundin en sýnir þó hversu víðtæk áhrif stríðsins eru farin að vera innan alþjóðahagkerfisins. Calbee segir að óstöðugleiki í Miðausturlöndum og raskanir á aðfangakeðjum hafi takmarkað aðgengi fyrirtækisins að hráefninu nafta, olíuafleiðu sem er meðal annars notuð við framleiðslu á prentsvertu fyrir plastumbúðir. Sjá einnig Japanir leggja fram 10 milljarða dala stuðning Japanir reiða sig mikið á olíuinnflutning en um 90% af olíu landsins er flutt inn og rúmlega 40% kemur frá Miðausturlöndum. Markmiðið með breytingunni er að tryggja stöðugt framboð á vörum fyrirtækisins án þess að það hafi áhrif á gæði innihaldsins. Aðrir japanskir matvælaframleiðendur hafa einnig kvartað undan því að það sé nú orðið erfiðara að pakka inn vörum á borð við tófú og te vegna skorts á hráefninu.

Share this article