Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Novo hættir við 160 milljarða verk­smiðju í Óðinsvé

Read Full Article →

Danski lyfjarisinn Novo Nordisk hefur fallið frá áformum um að reisa stóra verksmiðju í Óðinsvé þar sem til stóð að um 400 manns myndu starfa. Forstöðumaður hjá Novo í Óðinsvé staðfesti þetta við TV2 Fyn . Þess í stað hyggst lyfjafyrirtækið nota bygginguna, sem er þegar í smíðum og áætlað er að verði tilbúin á næsta ári, sem vöruhús. Nú er útlit fyrir að færri en 75 manns muni starfa í starfsstöðinni. Í svari við fyrirspurn viðskiptamiðilsins Børsen segir félagið að ákvörðunin endurspegli skynsamlega ráðstöfun þegar kemur að húsnæðismálum félagins út frá núverandi markaðsaðstæðum og breyttri eftirspurn á heimsvísu. „Því miður mun þetta leiða til fækkunar starfsfólks og hafa áhrif á meira en helming þeirra 150 starfsmanna sem starfa á svæðinu, auk þess sem áður fyrirhuguð störf verða ekki að veruleika að svo stöddu.“ Þegar framkvæmdir voru að hefjast í desember 2024 efndi Novo til stórrar athafnar þar sem þáverandi forstjóri félagsins, Lars Fruergaard Jørgensen, þáverandi fjármálaráðherra Nicolai Wammen og borgarstjóri Óðinsvéa, Peter Rahbæk Juel, kynntu áformin. Novo Nordisk sagði á þeim tíma að fjárfestingin í verksmiðjunni yrði um 8,5 milljarðar danskra króna eða um 160 milljarðar íslenskra króna. Til stóð að verksmiðjan yrði nýtt í pökkun lyfja Novo Nordisk fyrir sjaldgæfa sjúkdóma, eins og dreyrasýki.

Share this article