- What: Novo Nordisk's share price dropped 15% today and is at ~260 Danish kroner. Its stock is down 75% from 2024's peak.
- Impact: Shareholders face significant losses due to CagriSema trial failures vs. Eli Lilly's Tirzepatide.
Hlutabréfaverð danska lyfjarisans Novo Nordisk hefur lækkað um 15% í viðskiptum dagsins og stendur í tæplega 260 dönskum krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Gengi félagsins hefur nú lækkað um 75% frá hæsta punkti árið 2024 og hefur ekki verið lægra síðan um mitt ár 2021. Lækkunin fylgir í kjölfar þess að félagið greindi frá niðurstöðum rannsókna vegna þyngdarstjórnunarlyfsins CagriSema sem ollu vonbrigðum. Fjárfestar höfðu vonast eftir að CagriSema myndi spila stórt hlutverk fram á við hjá Novo, en niðurstöðurnar gefa til kynna að virkni lyfsins sé lakari en Tirzepatide, vara bandaríska lyfjarisans Eli Lilly, sem skilaði 25,5% þyngdartapi eftir 84 vikna meðferð samanborið við 23% í tilviki Cagrisema. Fjárfestar hafa ekki leynt viðbrögðum sínum með niðurstöðurnar og eru margir hverjir mjög svartsýnir á framhaldið, samkvæmt umfjöllun danska viðskiptamiðilsins Børsen . „Hlutabréfin eru búin að vera, Novo Nodisk er búið að vera,“ segir fjárfestirinn Peter Bækgaard. Hann starfaði sem fjárfestatengill fyrirtækisins í Bandaríkjunum á tíunda áratugnum og hefur síðan verið hluthafi í félaginu. „Novo er ekki með samkeppnishæfa vöru. Novo er að færast sífellt aftur á bak,“ segir Bækgaard. Hann segist þó ekki ætla að selja hlut sinn í félaginu að svo stöddu og vonast eftir að lyfjafyrirtækið nái að snúa stöðunni við til lengri tíma. Greinandi hjá Jyske Bank segir að niðurstöður rannsóknarinnar séu högg fyrir Novo og segist hafa skilning á því að fjárfestar séu órólegir. Hann segir að áður hafi markaðsaðilar haft væntingar um að framtíðarvöxtur félagsins myndi byggja á tveimur lykilstoðum en nú sé útlit fyrir að Novo þurfa að reiða sig í auknum mæli á nýja þyngdarstjórnunarlyf sitt, amycreti. Í aðdraganda tilkynningar dagsins höfðu greinendur gert ráð fyrir að meira en helmingur af vexti Novo Nordisk á næstu fimm árum yrði vegna CagriSem. Fyrir vikið gera markaðsaðilar ráð fyrir að félagið þurfi að færa niður áætlaðan vöxt á næstu árum. Forstöðumaður hlutabréfafjárfestinga á eignastýringasviði Danske Bank segir að markaðurinn hafi átt von á að cagrisema yrði í það minnsta jafn öflugt og tirzepatide, lyf Eli Lilly. Nú séu menn að velta fyrir sér hvaða verð Novo geti fengið fyrir cagrisema og hvort það sé yfir höfuð eftirspurn eftir lyfinu.