Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fasteignaskattur á orkumannvirki renni til sveitarfélaga

  • What: Iceland's Minister of Infrastructure proposes changes to property tax regulations for energy facilities.
  • Impact: The proposal aims to direct a larger share of property tax revenue from energy facilities to local municipalities, excluding those involved in electricity distribution.
Read Full Article →

Innviðaráðherra vill afnema undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati til að stærri hluti tekna renni til nærsamfélags. Lagt er til að þau sem annist raforkudreifingu verði undanskilin. Drög að frumvarpi þess efnis eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Í þeim er gert ráð fyrir að orkumannvirki verði undanþegin fasteignaskatti á fyrstu þremur starfsárum til að fjármagna framkvæmdir á upphafstímabili og að ný gjöld hafi ekki íþyngjandi áhrif á upphaf rekstrar. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að endurgjald af fasteignagjöldum af orkumannvirkjum eigi að renna til sveitarfélaganna sem beri þungann af orkuvinnslu. „Með þessu höggvum við einnig á hnúta sem hafa tafið nauðsynlega uppbyggingu orkumannvirkja um allt land.“ Lagt er til að innleiddar verði sérstakar dreifireglur um hvernig tekjum verði skipt milli sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum af orkuframleiðslu. Þá er einnig lagt til svokallað hvalrekaákvæði um hámark fasteignaskattstekna sveitarfélaga á hvern íbúa vegna stóriðju og orkumannvirkja. Ný tegund fasteignar Í drögunum er einnig lögð til skilgreining á nýrri tegund fasteignar, svokallaðri rýmiseign . Á vef stjórnarráðsins er rýmiseign skilgreind sem „þrívítt afmarkað rými utan um mannvirki og mannvirkjakerfi, ásamt réttindum sem þeim fylgja og heimilt er að reisa samkvæmt mannvirkja- og skipulagslögum“. Eyjólfur telur þessa breytingu nauðsynlega til að unnt sé að skrá á heildstæðan hátt mannvirki sem liggja yfir eða undir mörgum fasteignum eða þvert á staðarmörk sveitarfélaga.

Share this article