Kauphöllin hvetur stjórnvöld til þess að hækka hámark eignarhlutdeildar lífeyrissjóða í einstaka félögum umfram 20%, að minnsta kosti í tilfelli lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þetta kemur fram í umsögn Nasdaq Iceland um áformaskjal fjármálaráðuneytisins um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða þar sem greint er frá áformum um rýmkun magntakmarkana sem sjóðunum er gert að fylgja við fjárfestingar. Núgildandi lög kveða á um að lífeyrissjóðum sé óheimilt að eiga meira en 20% hlut í einstökum félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Í áformaskjalinu segir að umrætt þak muni gilda áfram „enda geta gilt þar sjónarmið ótengd skynsemi fjárfestinga hjá lífeyrissjóði“. Kauphöllin segist almennt hafa verið jákvæð fyrir hækkun þess hlutfalls sem lífeyrissjóðir geta átt í einstökum félögum, sérstaklega þegar kemur að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. „Fyrir stóra lífeyrissjóði getur verið áskorun að fjárfesta í smærri fyrirtækjum, þar sem umfang vinnunnar – greining, áhættumat, verðmat og eftirfylgni – vegur óhjákvæmilega þyngra en fjárhæðin sem hægt er að ráðstafa þegar eignarhlutir eru takmarkaðir við 20%. Í slíkum tilvikum borgar fjárfestingin sig síður, og sjóðirnir velja því frekar að fjárfesta í stærri félögum. Með hærra hámarki gætu lífeyrissjóðir tekið stærri stöðu í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem myndi bæði styrkja fjármögnunarmöguleika slíkra félaga og efla raunveruleg fjárfestingartækifæri sjóðanna.“ Þá hafi verið bent á samkeppni geti raskast ef einstaka lífeyrissjóðir eigi hlut í mörgum félögum í sömu atvinnugrein. Hærra hámark eignarhlutdeildar í einstökum félögum gæti þannig gert þeim kleift að eignast stærri hlut í einu félagi í tiltekinni atvinnugrein í stað þess að eiga minni hlut í mörgum félögum sem eru í samkeppni. Sjá einnig Vara við óæskilegum hvötum til að leita í óskráðar eignir „Þá telur Kauphöllin nauðsynlegt að kröfur um hámark eignarhlutdeildar í einstökum félögum verði útfærðar með þeim hætti að þær eigi ekki einungis við um félög sem eru skráð á skipulegan verðbréfamarkaði, eins og orðalag tillögunnar gefur til kynna, heldur einnig fjárfestingar í óskráðum félögum.“