Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hvar búa ríkustu Danirnir?

  • What: Article discusses distribution of financial assets among Danes.
  • Impact: N/A
Read Full Article →

Fjár­mála­eignir Dana eru afar mis­jafn­lega dreifðar eftir lands­hlutum og langstærsti hluti þeirra sem teljast efna­meiri býr á höfuð­borgar­svæðinu. Um 40% þeirra Dana sem eiga meira en 5 milljónir danskra króna í fjár­mála­eignum búa í höfuð­borginni, sam­kvæmt sérút­tekt Hag­stofu Dan­merkur fyrir danska við­skipta­blaðið Børsen. Samsvarar það um 97 milljónum íslenskra króna. Fjár­mála­eignir í þessum tölum eru meðal annars hluta­bréf, skulda­bréf, banka­innistæður og eignar­hlutir í fyrir­tækjum en eigið fé í íbúðar­húsnæði er ekki talið með. Sam­kvæmt út­tektinni eru 39.591 ein­staklingar á höfuð­borgar­svæðinu með fjár­mála­eignir yfir 5 milljónum danskra króna. Það er nærri tvöfalt fleiri en á Mið-Jót­landi, þar sem Árósar er stærsta borgin, og langt um­fram Norður-Jót­land, þar sem 8.538 ein­staklingar ná sama viðmiði. Børsen bendir á að þessar tölur skipti ekki aðeins máli í um­ræðu um tekjur og eignir heldur hafi þær einnig skýra við­skipta­lega þýðingu. Eignasöfn Dana hafa stækkað á undan­förnum árum og fjár­sterkari hópurinn er orðinn sí­fellt eftir­sóttari mark­hópur en bankar og sér­hæfð eignastýringar­fyrir­tæki keppast nú æ harðar um að fá að þjónusta þennan hóp og taka þátt í að stýra og ávaxta fjár­magn hans. Eignastýringar­fyrir­tæki sækja í einka­geirann Í um­fjöllun Børsen kemur fram að fleiri aðilar í eignastýringu hafi fært áherslur sínar í átt að einka­við­skipta­vinum. Þar vegur þungt að fjár­sterkir við­skipta­vinir eru orðnir kröfu­harðari og leiti í auknum mæli eftir fjöl­breyttari fjár­festingar­kostum en hefðbundnar banka­lausnir bjóða gjarnan upp á. Sem dæmi er fjallað um Secure Spectrum, sem er með skrif­stofu í Lyng­by norðan Kaup­manna­hafnar og einnig starfs­stöðvar í Ár­ósum, Ála­borg og Vi­borg. Fyrir­tækið sinnti lengi stofnana­fjár­festum á borð við líf­eyris­sjóði en hefur, að sögn Børsen, aukið vægi einka­geirans. Full­trúi fyrir­tækisins segir í blaðinu að efna­meiri við­skipta­vinir horfi sí­fellt meira til val­kosta á borð við inn­viða­fjár­festingar, fast­eignir og óskráð félög (private equity). Svipuð þróun er rakin hjá Formu­ep­leje, sem á rætur í Ár­ósum en vill auka við­skipti sín á höfuð­borgar­svæðinu. Þar er lögð áhersla á að þessi mark­hópur sé vand­fýsinn og treysti gjarnan sömu ráðgjöfum lengi en geti engu að síður bætt við sig öðrum sam­starfsaðila ef hann sér að­gengi að sér­hæfðari fjár­festingum eða sterkari þjónustu. Auðurinn er í fyrir­tækjum Í greininni er einnig bent á að stór hluti auðs efna­meiri Dana tengist fyrir­tækja­rekstri og eignar­haldi í einka­fyrir­tækjum. Það skýrir meðal annars af hverju Mið-Jót­land kemur næst á eftir höfuð­borgar­svæðinu: þar er fjöldi lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja sem hafa byggt upp veru­legar eignir hjá eig­endum sínum. Børsen lýsir því jafn­framt að margir frum­kvöðlar og fyrir­tækja­eig­endur ein­blíni fyrst og fremst á reksturinn sjálfan en leiti síðar eftir sér­hæfðri ráðgjöf um hvernig best sé að byggja upp og verja eignasöfnin sem verða til. Traust og nær­vera skipta enn máli Þótt stafræn ráðgjöf hafi orðið al­gengari segir Børsen að margir í eignastýringu telji persónu­leg sam­skipti áfram skipta miklu, sér­stak­lega þegar um stórar fjár­hæðir og langtíma­sam­band er að ræða. Í um­fjölluninni kemur fram að Arthascope, sem er með starf­semi í Hellerup, hyggist efla nær­veru sína á Jót­landi með nýrri starfs­stöð í Sil­ke­borg. Rökin eru þau að traust byggist oft best á beinum sam­skiptum og að við­skipta­vinir kjósi að geta hitt ráðgjafa sinn aug­liti til aug­litis. Heildar­myndin sem Børsen dregur upp er því sú að fjár­mála­eignir Dana séu að stórum hluta þéttar á höfuð­borgar­svæðinu og norðan Kaup­manna­hafnar, en sam­hliða sé sam­keppnin um fjár­sterkari við­skipta­vini að aukast. Eignastýrendur stilla upp sér­hæfðari lausnum, auknu fram­boði af „val­kosta­fjár­festingum“ og sterkari þjónustu – enda er markaðurinn, að sögn blaðsins, í vexti.

Share this article