Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

16 milljarða sér­stök arð­greiðsla hjá Lands­bankanum

Read Full Article →

Bankaráð Landsbankans mun leggja til að bankinn greiði út 16,1 milljarða króna í sérstaka arðgreiðslu. Það stefnir því í að bankinn greiði alls út 34,9 milljarða króna í arð á árinu 2026. Þetta kemur fram í tillögum til aðalfundar bankans sem fer fram 18. mars næstkomandi. Landsbankinn birti ársuppgjör þann 29. janúar sl. þar sem fram kemur að bankinn hafi hagnast um 38 milljarða króna í fyrra. Sjá einnig 19 milljarða arður og sér­stök arð­greiðsla til skoðunar Tilkynnt var um að bankaráð hygðist leggja til við aðalfund að bankinn myndi greiða um 18,9 milljarða króna í arð vegna ársins 2025, eða sem nemur um 50% af hagnaði ársins, í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Jafnframt kom fram að bankaráð væri með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfundinn. Í tillögum bankaráðs til aðalfundar, sem birtar voru í dag, kemur fram að bankinn ráðið muni leggja til sérstaka arðgreiðslu upp á 16,1 milljarð króna. Þess má geta að Landsbankinn lauk þann 11. febrúar 16 milljarða króna útboði verðbréfa sem telja til viðbótar eiginþáttar 1 (AT1). Ríkið á 99,8% af útistandandi hlutafé Landsbankans, þegar leiðrétt er fyrir eigin hlutum bankans. Aðrir hluthafar, sem eru 818 talsins, eiga 0,2% af útgefnu hlutafé bankans. Sjá einnig Bjóðast til að kaupa minni­hluta­eig­endur út Þess má geta að stjórn Landsvirkjunar er einnig með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu til fyrir aðalfund ríkisfyrirtækisins í apríl.

Share this article